Látið íþróttirnar í friði

Hef aldrei skilið af hverju mótmælendur finna sér þörf til þess að trufla íþróttaviðburði sem að flestir hverjir hafa stuðlað að friði og verið til góðs. Hef einhvernveginn á tilfinninguni að þetta fækki stuðningsmönnum sjálfstæðis Tíbet frekar en hitt.

Alveg furðulegt þegar að mótmælendur finna hvöt til þess að skemma eða beita einhverjum öfgaaðferðum til þess að koma málstað sínum á framfæri. Efast um að það fái hinn almenna borgara til þess að styðja við einhvern málstað.


mbl.is Trufluðu athöfn þegar ólympíueldur var kveiktur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, leyfum grey Kínverjunum að vera í friði.  Alveg óþolandi að það sé verið að vekja athygli á mannréttindabrotum og manndrápum í þeirra eigin bakgarði þó þeir séu að fara að halda stærsta íþróttaviðburð heims þar.

Dabbi (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 11:15

2 Smámynd: Pétur Kristinsson

Það var ekki það sem ég var að segja. Ég styð málstað Tíbeta 100% en að eyðileggja íþróttaviðburði er einungis til þess fallið að þinn málstaður hljóti álitshnekki. Þegar að USA sniðgekk ólundarleikana í Moskvu 1980 skaðaði það leikana mikið en hafði það áhrif á heimspólitíkina, nei.

Mótmælum á annan og friðsamlegri hátt.

Pétur Kristinsson, 24.3.2008 kl. 12:27

3 Smámynd: Linda

Kínversk stjórnvöld eru pakk, sem hata frelsi og lýðræði, virða ekki mannslíf eða neitt sem getur truflað þeirra ljótu stefnu.  Að heimurinn yfir höfuð skuli ætla taka þátt í Ólympíu leikum í landi sem þolir ekki frelsi og mannréttindi, beislar þegna annarra landa með hótunum og morði er mér með öllu óskiljanlegt.  Íþróttir eiga ekki að vera yfir það hafið að fá að finna fyrir mótmælum og andhófi, sérstaklega þegar mannréttinda brot eru viðriðin. Samt má ofbeldi ekki spila inn í þau andhóf, slíkt er aldrei ásættanlegt.

kv. 

Linda, 24.3.2008 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pétur Kristinsson
Pétur Kristinsson
Assssssholes
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband