Færsluflokkur: Bloggar

Til hamingju Keflavík

Þið eruð vel að titlinum komnar. Njótið vel og skemmtið ykkur vel um helgina.
mbl.is Keflvíkingar Íslandsmeistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gildir þetta ekki örugglega líka með bjórinn?

Oft rekur maður sig á vatnsþorsta eftir erfiðar æfingar og sinnir maður þeim þörfum undantekningarlaust en þetta hefur aukaáhrif. Bjórþorstinn  safnast upp og sleppir sér oftast á laugardagskveldi. Þá virkar vatnið eingöngu sem hreinsivökvi á hendur og andlit en breytist svo aftur í lífsins vökva á sunnudagsmorgni. Það sem að bjór hefur umfram vatnið er að hann platar mann ekki eins og vatnið gerir í gufuformi í eyðimerkum sahara í nafni fata morgana, heldur kemur bjórinn fram við mann eins og hann er klæddur með froðu á toppnum. Þetta hef ég aldrei séð vatnið gera.
mbl.is Óþarfi að drekka átta vatnsglös á dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tryggingafélögin eiga líka einhverja sök á þessu.

Meðan að þau eru með stórfurðulega og illskiljanlega skilmála sem að virðast hafa þann tilgang einan að koma í veg fyrir að greiða fólki þær bætur sem það taldi sig eiga rétt á að þá verða tryggingasvik stórt vandamál. Ég er ekki að mæla þeim bót sem standa í svona gjörningum en maður hefur velt því fyrir sér hvort einfaldari og skýrari reglur tryggingarfélagana kæmu að mestu í veg fyrir svona athæfi?


mbl.is Tryggingasvik vaxandi vandamál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Týpískt með lögguna.

Þegar menn mótmæla einhverju óréttlátu á þessum klaka þarf löggan alltaf að fara í lögguleik. Vissulega var þetta lögbrot en ég held að flestir styðji þessar aðgerðir því að það finnst örugglega öllum þetta olíuverð vera komið út fyrir öll velsæmismörk. Munið hvernig löggan hegðaði sér þegar að falun gong og fleiri voru að mótmæla mannréttindabrotum í Kína þegar að einhverjir háttsettir þaðan heimsóttu okkur fyrir nokkrum árum? Þar voru menn ekki einu sinni að fremja lögbrot.

Best væri eins og sagt hefur verið annars staðar að fara að sýna víðtækari stuðning við bílstjórana, þeir eru jú að berjast fyrir því að olíuverðið verði lækkað og flest erum við að kaupa þessa olíu.


mbl.is Handalögmál í Ártúnsbrekku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikilvægur sigur en 4. sætið ekki tryggt.

02.04.2008 Arsenal  Liverpool 8 liða úrslit Meistaradeildar Emirates Stadium 
05.04.2008 Arsenal  Liverpool Enska Úrvalsdeildin Emirates Stadium 
08.04.2008 Liverpool  Arsenal 8 liða úrslit Meistaradeildar Anfield 
13.04.2008 Liverpool  Blackburn Enska Úrvalsdeildin Anfield 
19.04.2008 Fulham  Liverpool Enska Úrvalsdeildin Craven Cottage 
26.04.2008 Birmingham  Liverpool Enska Úrvalsdeildin St Andrews 
03.05.2008 Liverpool  Man City Enska Úrvalsdeildin Anfield 
11.05.2008 Tottenham  Liverpool Enska Úrvalsdeildin White Hart Lane 

 

 

 

 

 

Eins og sést hérna eigum við eftir að leika 4 útileiki og  2 heimaleiki. Þar að auki eigum við erfiða leiki í meistaradeildinni 2 á móti arsenal og síðan Chelsea í 4 liða úrslitum og svo úrslitaleikinn í Moskvu. Verðum að vinna 2-3 útilleiki og heimaleikina 2 sem að eru eftir.


mbl.is Torres tryggði Liverpool sigur á Everton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er málið?

Það er ekki eins og við eigum lítið af heitu vatni og landi til þess að þetta geti orðið að veruleika. Jú, oft er kalt í veðri og úrkoma en þá er ekkert mál að skella sér í heitan pott eða sundlaugina meðan að beðið er eftir því að komast í einhverja rennibrautina. Við erum með alla burði til þess að búa til frábæran vatnagarð. Nóg land og nóg af heitu vatni go for it borgarstjórn ekki seinna en í dag.
mbl.is Vatnagarður blásinn af?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vonandi verður enginn Steve Bennet

Ólíkt manure þurfum við ekki keypta dómara eins og manure hefur gert við Mike Riley í gegnum tíðina og núna Steve Bennet. Þetta verður hörkuleikur þar sem að mínir menn taka þetta 2-0.


Vonandi verður enginn Bennett

Ólíkt manure erum við ekki háðir aðstoð dómara til þess að ná árangri í þessari deild. Verður væntanlega hörkuleikur og mínir menn taka þetta 2-0.
mbl.is Stórleikur á Anfield í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Pétur Kristinsson
Pétur Kristinsson
Assssssholes
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 962

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband