Færsluflokkur: Bloggar

LOL, er þetta tilvonandi fyrirliði Englands?


Leikmenn Chelsea halda Rio Ferdinand í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rio Ferdinand varnarmaður Manchester United hefur beðið öryggisvörð afsökunar á að hafa sparkað í hana í kjölfar þess að Michael Ballack skoraði sigurmark Chelsea gegn þeim úr vítaspyrnu í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Er Ferdinand gekk af velli lét hann reiði sína bitna á múrvegg en fyrir mistök sparkaði hann í kvenkyns öryggisverð sem þar var nærri.

,,Því miður stóð daman þarna við og ég rakst óvart í hana með fætinum. Ég baðst innilega afsökunar og fór aftur til að vera viss um að það væri í lagi með hana," sagði hann.

,,Ég hef gengið frá því að henni verði sendur blómvöndur. Henni til hróss þá hló hún að þessu og sýndi mikinn skilning. Hún sagði að hún hafi ekki meitt sig."

 

Hann er ennþá sama sultan og hann hefur alltaf verið. Enginn leiðtogahæfileiki þarna bara vesen.

 


Hvor aðilinn var stjórnlaus? Löggan eða bílstjórar?

Erlendur vinnufélagi minn benti  mér á það í morgun þegar að þessar ótrúlegu myndir birtust í sjónvarpinu að öll faðir hans, systir og maðurinn hennar væru öll lögregluþjónar í Berlín. Þar skipti öllu máli að reyna að róa mótmælendur en ekki að hleypa öllu upp eins og löggan gerði í þessu tilfelli. Frásögn stúlku af ofbeldi löggunnar gagnvart einstaklingnum sem grýtti lögguna er ekki til þess að bæta málstað löggunnar. Það að nota táragas gegn krökkum og konum lýsir því vel í hvaða tilgangi löggan kom þarna uppeftir í dag. Það þarf enginn að koma hingað og segja mér að ekki hefði verið hægt að sjattla málin með rólegri hætti.

Ég er ansi hræddur um að það sem hefst upp úr þessu dæmalausa rugli hjá löggunni er að mótmælendur komi til  með að beita harkalegri aðgerðum og samstarfi við lögguna varðandi mótmæli í framtíðinni verður ekki haft. Greinilegt að þessi stóra "aðgerð" löggunnar hafi komið að ofan og væntanlega þá frá Birni Bjarnasyni sem hefur greinilega viljað notað tækifærið til þess að sjá "herinn" sinn (Hinu einu sönnu ofbeldisseggi og æsingarmenn) í aksjón. Kannski fær hann tækifæri til þess að nýta myndbrot af þessum atburðum í nýja Bruce Willis mynd.

Virðing mín fyrir löggunni beið mikinn hnekk í dag og þeir þurfa að koma fram opinberlega og biðjast afsökunar á athæfi sínu þarna upp frá. Ég er þó ekki að afsaka þá sem svöruðu löggunni með ofbeldi enda er ég eindreginn andstæðingur ofbeldis.


mbl.is Mótmælin virtust stjórnlaus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki góðar fréttir

Það segir sig náttúrulega sjálft að ekkert lið má við því að missa sinn besta leikmann og fyrirliða fyrir eins mikilvægan leik og leikinn gegn chel$ky. Þetta er án vafa besti leikmaður úrvalsdeildarinnar og evrópu í dag án þess að á nokkurn sé hallað. Maður sem gerir allt vel inni á vellinum og leggur sig alltaf 100% fram. Það er vonandi að þeir geti tjaslað honum saman fyrir þennan leik.


mbl.is Óvíst með Gerrard gegn Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha ha, fékk ekki þrjú víti, greyið.

Það verður ekki af Ferguson tekið að hann er sæmilegasti stjóri en þetta endalausa væl í honum þegar að illa gengur er mikill löstur á hans karakter. Hann er fljótur að gleyma því að hann hefur fengið þær allnokkrar mjög ódýrar og jafnvel ókeypis á gamla klóinu. Hver man ekki eftir dómgæslu Mike Reilly og dýfingameistaranum Ronaldo?

Og svona að lokum. Skilaði meistaraspilamennskan honum bara einu stigi? Þá finnst mér kröfurnar orðnar ansi lágar á lið hans.


mbl.is Ferguson: Lékum eins og meistarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er svo ekki betra að nota færeysku leiðina?

Þ.e. að loka þetta lið lengi inni. Við erum þó allavega laus við þetta lið af götunum á meðan. Hérna tíðkast það að taka viðkomandi glæpamenn til yfirheyrslu og sleppa þeim síðan ef þeir játa.
mbl.is Lögregla leitar enn ræningja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ha ha, Capello hefur húmor eftir allt saman.

Hvernig dettur manninum í hug að þessi maður sé fyrirliðaefni? Hann hefur 2 orða orðaforða s.s. orðin "fuck" og "off". Maðurinn er mesti tuðari deildarinnar og hefur litla sjálfstjórn.

Hann er ágætis leikmaður sem vinnuhestur en sem framherji vantar honum að skora fleiri mörk og hann þarf svo sannarlega að laga það.

Af tvennu illu myndi ég frekar vilja sjá hitt gáfnaljósið hjá manure, Ferdinand, sem fyrirliða. Dómararnir fengju þá allavega smá vinnufrið.


mbl.is Capello: Rooney er framtíðar fyrirliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlýnun jarðar eða klifur? Það er spurningin

Vakti maðurinn ekki bara athygli á klifri og hversu ólofthræddur maðurinn er? Maður spyr sig
mbl.is Klifraði 45 hæðir í Hong Kong
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Towering inferno

Maður er að velta fyrir sér hvernig slökkviliðið er í stakk búið til þess að takast á við eldsvoða í háhýsum sem skjótast upp eins og gorkúlur á höfuðborgarsvæðinu. Þetta hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir þá sem sinna slökkvistörfum.
mbl.is Enginn í hættu vegna eldsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórkostleg úrslit hjá stórkostlegu liði.

Það má með sanni segja að þetta kvöld fari í sögubækurnar sem eitt af magnaðri evrópukvöldum sem maður hefur upplifað. Liðið byrjaði heldur rólega, virkuðu taugatrekktir fyrsta hálftímann en síðan náðum við tökum á leiknum sem að við héldum nánast til leiksloka. Liðið var frábært og gaman að sjá hvernig Hyypia gamli hélt upp á nýja samninginn sinn. Menn hafa verið að tala um hversu hægur hann er orðinn en maðurinn hefur aldrei notað hraða til þess að spila varnarleikinn heldur les hann leikinn betur en flestir ef ekki allir varnarmenn og leitun er að betri skallamanni.

 Núna koma ábyggilega manure grenjuskjóður og segja að þetta hafi verið rangur vítaspyrnudómur og víti hefði átt að vera dæmt á emerates. Enda eru þeir illa spilltir af stórdularfullum dómum Mike Reilly á gamla klóinu. Og núna eiga þeir Steve Bennett líka.

En talandi um leikinn í kvöld. Stemningin á Anfield var ólýsanleg og maður skilur vel á svona kvöldi af hverju áhorfendur þar eru kallaðir 12 maðurinn fyrir svona stórleiki. Crouch og Kuyt voru stórkostlegir í kvöld og þegar að Torres komst inn í leikinn áttu varnarmenn arsenal fá svör. En þeir voru hættulegir fram á við og það kom í ljós þegar að Walcott komst með frábærum spretti upp allan völlinn og lagði upp markið fyrir Adenbayor. Frábært mark og ég hélt að þar með væri þetta búið. En ekki Liverpool liðið. Með frábærum spretti snýtti Babel Toure og fékk dæmda óumdeilda vítaspyrnu. Þá steig kóngurinn og fyrirliðinn Steven Gerrard upp og eins og sönnum fyrirliða sæmir kláraði hann dæmið. Babel kórónaði síðan frábæra innkomu sína með stórkostlegu marki þar sem að hann sýndi hraða sinn og styrk, gríðarlegt efni þarna á ferð.

Næst er það Chel$ky og mun það jafnvel verða erfiðari viðureign þar sem að þeir hafa sýnt mikinn stöðugleika undanfarið og þar á eftir manure/barca í úrslitum í moskvu.


mbl.is Liverpool og Chelsea sigruðu og mætast í undanúrslitum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Shit maður minn

456484B

Þetta minnir mann óþægilega á djúpsteikta kjúklingabita frá KFC. Kannski aðeins þurrari Smile

chicken_wings_ztf


mbl.is Nýjar vísbendingar um fyrstu mennina í Ameríku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Pétur Kristinsson
Pétur Kristinsson
Assssssholes
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 931

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband