John Fogerty í gærkvöldi.

Kíktum á tónleikana í Laugardalshöllinni. Vorum búin að fjárfesta í stúkumiðum til þess að losna við allt kraðak og fengum fín sæti, þökk sé King vini mínum. Komum inn þegar að KK var að spila sitt prógram og var hann með flotta hljóðfæraleikara með sér, m. a. Guðmund Pétursson á gítar, Björgvin Gíslason á gítar og Ásgeir Óskarsson á trommur. Fín frammistaða hjá honum og félögum.

Síðan hófst löng bið. Fyrst hlupu rótarar um sviðið eins og óðir menn að taka til eftir KK og félaga og síðan tóku við erlendir "soundtékkarar". Svona gekk þetta í 45 mínútur eftir að KK lauk sér af. Kannski var full þörf á þessu, maður veit ekki.

Kl. 21.45 mætti kallinn loksins á sviðið og hóf leik með 3 klassískum CCR smellum sem kveiktu heldur betur í áhorfendum. Síðan tóku við minna þekktir smellir ásamt nýrra efni af sólóferlinum sem virtust falla vel í kramið hjá áhorfendum. Fogerty er trúr sjálfum sér og spilar einfalt og melódískt rokk sem getur ekki annað en fallið í kramið hjá fólki. Hann geymdi smelli eins og Rockin' all over the world, Proud Mary, Cotton fields og fleiri þangað til í lokin og ég hélt að þakið myndi rifna af höllinni þegar að hann tók Down on the corner. Kallinn lauk sér af á miðnætti og hafði þá spilað án þess að taka neina pásu, sem að er nokkuð gott fyrir tónlistarmann á hans aldri.

Fyrirfram hafði ég áhyggjur af því að erfitt yrði að ná upp stemmningu í höllinni enda miðvikudagskvöld og áhorfendur komnir af léttasta skeiði en það var öðru nær. Aðra eins stemmningu hef ég varla séð og kallinn hafði orð á því hversu ánægður hann var með að fólk kynni lögin hans. Enda lofar hann því að koma aftur til Íslands sem fyrst. Heyrði á rás 2 í dag að kallinn spilaði vanalega ekki svona lengi þannig að hann hefur verið ánægður með landann.

Bandið samanstóð af eðalhljóðfæraleikurum og kom Fogerty sjálfur mér á óvart hversu snjall gítarleikari hann er. Trommarinn var einn sá besti sem komið hefur hingað til lands. Mikill kraftur og innlifun í honum enda þurfti að skipta út einni trommunni í einu laginu. Bassaleikarinn var einnig frábær. Hinir gítarleikararnir voru eðal en fengu að njóta sín minna en aðalstjarnan, skiljanlega en einn þeirra var alveg einstaklega fjölhæfur og gat spilað á fiðlu í sumum lögum, mandólín í öðrum og banjó í enn öðrum og steel guitar í einu lagi og gott ef hann var ekki á slide guitar í einu þeirra.

S.s. eðaltónleikar með einu af höfuðskáldum rokksögunnar og vonandi að hann standi við stóru orðin og mæti aftur. Alveg þess virði að borga 10.000 fyrir að sjá þennan snilling aftur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Tryggvason

Hvaða sannur fótboltaáhugamaður fer á tónleika á leikdegi úrslitaleiks í CL? það er svona svipað og að páfinn færi á diskó á jólunum!!!

Þú ert nú meiri pappakassinn og miðað við hvenær þú keyptir þennan miða þá hafðir þú aldrei trú á að þínir menn færu í úrslitaleikinn.

Ólafur Tryggvason, 22.5.2008 kl. 20:18

2 Smámynd: Pétur Kristinsson

LOL ertu að segja að það sé bannað að fara á diskó á jólunum? Lestu biblíuna og þar er hvergi minnst á diskótek. Það er bara minnst á víngerð jesú og fleira í þeim dúr.

Annars held ég að þú hafir ekki viljað hafa mig þarna því að þú sást um að kaupa þessa miða á þessum tiltekna degi skamm skamm. En ég frétti það að menn hafi ekki þolað pressuna heima hjá Jóni Geir. Man ekki betur en að við Púllarar hafi horft á vító 2005 á móti AC með stóískri ró, enda vanari úrslitaleikjum.

Pétur Kristinsson, 22.5.2008 kl. 21:54

3 Smámynd: Ólafur Tryggvason

HAHAHAHAHA - það er heldur ekkert minnst á fótbolta í biblíunni enda hann fundinn upp töluvert seinna líkt og diskóið.

Einn lúserpúl aulinn í viðbót hefði ekki breytt nokkrum sköpuðum hlut, HVAÐA HVAÐA, þoldum ekki pressuna, þetta var leikur fullur af tilfinningum og hasar og að sjálfsögðu lifðum við okkur inn í atburðin af fullum krafti, heimildarmaður þinn, tréhesturinn JP ætti nú ekki að segja mikið, hann var sveittur á kantinum af spenningi og farinn að hrópa áfram MAN UTD eins og sannur stuðningsmaður. Hvað segir þetta þér? þú átt ekki að taka mark á lélegum flökkusögum!

Ólafur Tryggvason, 23.5.2008 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Pétur Kristinsson
Pétur Kristinsson
Assssssholes
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 886

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband